Gjöf frá Magnússkógum þriðja í elsta flokki hryssa-

  • 4. ágúst 2011
  • Fréttir
Gjöf frá Magnússkógum þriðja í elsta flokki hryssa-

Von frá Vigra er sigurvegari í elsta flokki kynbótahryssa á Heimsmeistaramótinu.

Hún er sem stendur næst hæst dæmda kynbótahross mótsins með einkunina 8,68 fyrir sköpulag og 8,62 fyrir hæfileika. Í aðaleinkunn hlýtur Von því 8,64. Hin danska Odda fra Gultentorp er í 2. Sæti með aðaleinkunnina 8,43. Okkar fulltrúi, Gjöf frá Magnússkógum hækkaði úr 8 í 8,5 fyrir tölt og skeið og hækkaði þar með hæfileikaeinkunn sína í  8,45 og lýkur þátttöku á heimsmeistaramótinu með stórgóða aðaleinkunn 8,36 og er í þriðja sæti flokksins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link