Vita frábært tölt
Viti frá Kagaðarhóli er einn af vinsælustu stóðhestum landsins þessa dagana og er stútfullt undir hann norður í Viðvíkursveit í Skagafirði. Hann vakti mikla hrifningu mótsgesta á LM2012 fyrir alveg vita frábært tölt (9,5), mýkt og fas. Hann er einn af nokkrum afkvæmum Smára frá Skagaströnd sem sameina ekta reiðtölt, mikinn fótaburð og mýkt. Má þar nefna Loka frá Selfossi, sem var í toppbaráttunni í B flokki á LM2012. Móðir Vita er Ópera frá Dvergsstöðum, Kveiksdóttir frá Miðsitju. Eigendur og ræktendur eru Víkingur Þór Gunnarsson og Guðrún J. Stefánsdóttir, kennarar við Hólaskóla. Knapi og þjálfari Vita er meistari Gísli Gíslason frá Hofsstöðum í Hálsasveit.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH