„Fengum bætur til að kaupa hey“

  • 13. desember 2013
  • Fréttir
Flúormengun veldur því að álverið greiðir hestamönnum bætur.

Flúormengun er enn talsverð í Reyðarfirði og hefur þetta haft áhrif á búskap þar. Hestamenn á svæðinu hafa haft áhyggjur af stöðunni en í skýrslu frá Umhverfisstofnun kemur fram að beitarlönd séu illa hæf til beitar fyrir nautgripi og sauðfé, en hæft til hrossabeitar.

Í viðtali við Eiðfaxa segir Jóhann Sædal hestamenn hafa fengið bætur frá Álverinu í fyrra. Þær bætur voru ætlaðar til heykaupa, en ekki var mælt með að fóðra hross á því heyi sem fékkst af túnum í firðinum í fyrra.

Fyrr á árinu kom fram á vef Matvælastofnunar fram að samkvæmt reglugerð um óæskileg efni í fóðri eru hámarksgildi flúors í fóðri 50 mg/kg fyrir nautgripi, geit- og sauðfé en 30 mg/kg ef dýrin eru mjólkandi.

Flúor hleðst upp í gróðri og of mikið af því getur skemmt tennur í bæði kindum og hestum. Ekkert er í starfsleyfi sem segir til um hve mikið flúor má vera í gróðri eða grasbítum. Hins vegar er fylgst vel með þessu í nágrenni álvera og gripið inn í ef tilefni er til. Flúor er mælt í rjáfri álversins í Reyðarfirði, í skorstein, loftsýni eru tekin á fjórum stöðum utan þynningarsvæðis og í gróðri á svæðinu. Umhverfisstofnun telur flúorið í Reyðarfirði ekki valda fólki hættu en full ástæða sé til að bregðast við og kanna hvort áhrifa gæti í búfé í firðinum. Áður en ráðist verði í frekari aðgerðir þurfi að kanna styrk flúors í heyi. Umhverfisstofnun hefur þegar beðið Alcoa Fjarðaál að kanna hvað veldur þessari mengun og er sú rannsókn hafin. Þá hefur Alcoa Fjarðaál beðið Náttúrustofu Austurlands um ráðgjöf varðandi frekari rannsóknir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link