Nýr Landsmótsstaður í uppbyggingu?
Stærsta reiðhöll landsins hefur nú risið á Kjóavöllum. Hún verður vígð 1. febrúar nk. Mynd/Hestamannafélagið Sprettur
Hestamannafélagið Sprettur hefur boðið aðstöðu sína undir Landsmót hestamanna 2016. Á stjórnarfundi Landssambandi hesamannafélaga var bréf hestamannafélagsins Spretts lagt fram, en það býður nýtt keppnissvæði sitt á Kjóavöllum undir stórhátíðina.
Hestamannafélagið Sprettur var stofnað árið 2012 við sameiningu hestamannafélaganna Gusts í Kópavogi og Andvara í Garðabæ. Félagsmenn eru yfir 1000 talsins og telst því til næst stærsta hestamannafélags landsins.
Félagssvæði Spretts á Kjóavöllum mun verða með veglegsta móti eftir uppbyggingu sem nú stendur yfir. Glæsileg reiðhöll hefur risið, sú stærsta á landinu, en hún mun vera vígð 1. febrúar nk. Auk þess hefur annar keppnisvöllur félagsins, af tveimur, verið tekin í notkun er ráðgert að ganga frá útisvæði félagsins næsta sumar.
Í fundargerð Landssambandsins er ekki tekið afstaða til umsóknar Spretts. Verður hún þó að teljast nokkuð seint á ferðinni því samkvæmt lögum Landssambandsins skal ákvörðun um mótsstað liggja fyrir amk. fimm árum fyrir mótið. Samningar skulu vera frágengnir og undirritaðir minnst þremur árum áður. Árið 2011 ákvað stjórn Landssambandsins að ganga til samninga við Gullhyl ehf. um að halda Landsmótið 2016 á Vindheimamelum í Skagafirði.
Landsmót hestamanna hafa allra jafna verið haldin til skiptis norðan heiða og sunnan og hefur oftar en ekki verið barist fyrir mótsstað hverju sinni. Staðsetning mótanna hefur ávallt orkað tvímælis meðal hestamanna; á meðan sumir vilja festa einn Landsmótsstað hugnast öðrum núverandi kerfi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH