Markús fær keppinaut
Tveir synir Orra frá Þúfu munu að líkindum berjast um Sleipnisbikarinn á LM2012, þeir Markús frá Langholtsparti og Álfur frá Selfossi. Áður hafa tveir aðrir synir Orra hlotið bikarinn, Þorri frá Þúfu á LM2002 og Gári frá Auðsholtshjáleigu á LM2011. Sjálfur hlaut Orri bikarinn á LM2000 í Reykjavík.
Álfur frá Selfossi náði þeim áfanga í gær að fara yfir fimmtíu afkvæma múrinn, aðeins tíu vetra. Fyrirfram þótti það torsótt markmið en þó ekki ómögulegt í ljósi vinsælda hestsins allt frá því hann var tvævetur. Vinsælda sem mörgum þótti nóg um.
Nú er komið í ljós að Álfur er engin bóla, heldur bullandi kynbótahestur. Af 392 skráðum afkvæmum eru 51 með fullnaðardóm, sem er mætingarhlutfall í dóm upp á 13%. Tuttugu og eitt er með fyrstu verðlaun, eða yfir 8,0 í aðaleinkunn. Meðaltal aðaleinkunna fulldæmdra afkvæma er 7,92, meðatal fyrir sköpulag 7,98 og meðaltal kosta 7,88.
Með hæstu aðaleinkunn afkvæma Álfs er Álfadrottning frá Selfossi, 8,53. Hún er með 8,37 fyrir sköpulag og 8,64 fyrir kosti. Með hæsta meðaleinkunn fyrir sköpulag er Prinsinn frá Efra-Hvoli með 8,46 og með hæsta meðaleinkunn fyrir kosti er Rauðhetta frá Kommu með 8,80.
Helsti keppinautur Álfs um Sleipnisbikarinn á LM2012, ef báðir mæta, er Markús frá Langholtsparti. Ómögulegt er á þessari stundu að segja til um hvor kemur til með að reiknast með fleiri stig í kynbótamati í útreikningi fyrir LM2012. Álfur er með 127 stig í aðaleinkunn kynbótamats eftir síðasta reikningsár og Markús 123 stig. Meginreglan er sú að aðaleinkunn stóðhesta lækkar eftir því sem árin líða og dæmdum afkvæmum fjölgar. Álfur gæti notið þess nú.
Markús stendur hins vegar vel að vígi ef litið er á einkunnir fulldæmdra afkvæma. Meðaltal aðaleinkunna 66 fulldæmdra afkvæma er 7,95, sem er þremur kommum hærra en hjá Álfi. Meðaltal sköpulags er 7,99 og meðaltal kosta er 7,92. Skráð afkvæmi Markúsar eru 404 og mætingarhlutfall í dóm 16,3%.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH