Góðu veðri spáð á Svínavatni
Ís-landsmótið á Svínavatni fer fram næstkomandi laugardag, 28. febrúar. Mótshaldarar hafa ákveðið að framlengja skráningafrestinum til miðnættis í kvöld.
„Eins og er, er gert ráð fyrir hagstæðu veðri á laugardag, hægviðri, úrkomulausu og frosti. Ef af einhverjum ástæðum verður að aflýsa mótinu verða skráningagjöld endurgreidd,“ segir í frétt á vefsíðu mótsins.
Skráningar berist á netfangið [email protected]. .This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og Tölt. Skráningargjald eru 3.500. kr. á skráningu.
Greiðist inn á reikning 0307-13-110240 Kt: 480269-7139 og setja sem skýringu fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.
.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH