Innbrot í hesthús við Hlíðarþúfur í Hafnarfirði
Aðfararnótt sunnudagsins 28. mars var brotist inn í hesthús við Hlíðarþúfur í Hafnarfirði. Þjófarnir höfðu á brott með sér fimm hnakka, nokkur beisli og önnur reiðtygi ásamt 5 hjálmum. Tjónið er að sjálfsögðu tilfinnanlegt fyrir eigendurnar sem ekki eru tryggðir sérstaklega vegna reiðtygjanna eða innbrots í hesthús.
Ef einhverjir urðu varir við óvenjulegar mannaferðir við Hlíðarþúfur um helgina eða hafa verið boðin reiðtygi til kaups á hagstæðu verði eru þeir hinir sömu hvattir til að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Allar upplýsingar geta skipt máli þegar upplýsa þarf brot af þessu tagi.
Bent skal á að hægt er að tryggja sig fyrir tjóni af þessu tagi hjá tryggingafélögunum og sjálfsagt að menn geri það.
Húseigandi við Hlíðarþúfur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH