Aasa og Hugleikur sigruðu fjórgangskeppni

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir
Aasa og Hugleikur sigruðu fjórgangskeppni

Miðvikudagskvöldið 4. apríl fór fram keppni í fjórgangi í Uppsveitadeildinni á Flúðum. 21 knapi mætti til leiks, hestakostur var góður og hörð keppni var um sæti í úrslitum. Efst eftir forkeppni var Ása Ljungberg og Hugleikur frá Galtanesi, fast á hæla hennar voru þó Guðmann Unnsteinsson og Prins frá Langholtskoti, Sólon Morthens og Svali frá Tjörn og Sigurbjörg Bára Björnsdóttir og Blossi frá Vorsabæ II. 6 knapar riðu B-úrslit sem voru mjög jöfn og spennandi.  Sigurvegari B úrslita var að lokum  Hermann Þór Karlsson á Jódísi frá Efri-Brúnavöllum.  Í  A úrslitum var ekki minni spenna en ekki varð breyting á röðun efstu hesta frá forkeppni, glæsilegur sigurvegari í fjórgangi Ása Ljungberg og Hugleikur frá Galtanesi.  

 
Stigahæstu knapar eftir fyrstu tvær greinarnar eru Ása Ljungberg og Sólon Morthens, jöfn með 17 stig. Spennan jókst einnig í liðakeppninni, LIÐIÐ HANS HJALLA leiðir með 30 stig, ÁSTUND ekki langt undan með 29 stig og þriðja stigahæsta liðið er JÁVERK með 20,5 stig.
Það eru þó fullt af stigum eftir í pottinum og allt getur gerst og spennandi verður að fylgjast með næstu grein sem er fimmgangur sem verður föstudagskvöldið 20 apríl.
 
 
Meðfylgjandi eru helstu úrslit og staðan í stigakeppninni
 
Fjórgangur
B úrslit 1. flokkur – 
  Sæti   Keppandi   Heildareinkunn
1   Hermann Þór Karlsson / Jódís frá Efri-Brúnavöllum I 6,37 
2   Líney Kristinsdóttir / Hljómur frá Fellskoti 6,10 
3   Kristbjörg Kristinsdóttir / Vordís frá Jaðri 5,93 
4   María Birna Þórarinsdóttir / Birta frá Fellskoti 5,73 
5   Þórey Helgadóttir / Glæsir frá Feti 5,63 
6   Gunnar Jónsson / Vífill frá Skeiðháholti 3 5,03 
 
 
Fjórgangur
A úrslit 1. flokkur – 
  Sæti   Keppandi   Heildareinkunn
1   Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg / Hugleikur frá Galtanesi 7,13 
2   Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,97 
3   Sólon Morthens / Svali frá Tjörn 6,47 
4   Sigurbjörg Bára Björnsdóttir / Blossi frá Vorsabæ II 6,43 
5   Hermann Þór Karlsson / Jódís frá Efri-Brúnavöllum I 6,07 
 
STAÐAN Í EINSTAKLINGSKEPPNINNI
 
1-2, Sólon Morthens 17
1-2, Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg 17
3 María B. Þórarinsdóttir 11
4 Knútur Ármann 10
5 Guðmann Unnsteinsson 9
6 Líney S. Kristinsdóttir 8
7 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir 7
8-9, Bjarni Birgisson 6
8-9, Hermann Þór Karlsson 6
10 Einar Logi Sigurgeirsson 5
 
 
STAÐAN Í LIÐAKEPPNINNI
LIÐIÐ HANS HJALLA 30
ÁSTUND 29
JÁVERK 20,5
LAND&HESTAR/NESEY 13
MOUNTAINEERS OF ICELAND 10
ÞÓRISJÖTNAR 6
BYKO 1,5
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link