Ræktunarferð Fáks og Limsfélags
Hin árlega hrossaræktunarferð kynbótanefndar Fáks og Limsfélagsins verður farin laugardaginn 3. mars nk.
Lagt verður af stað frá Reiðhöllinni í Víðidal kl. 9 og eru allir áhugasamir hrossaræktarunnendur velkomnir.
Dagkráinn er eftirfarandi :
- Margrétarhof (Krókur) Reynir Örn Pálmason sýnir okkur búið, kynnir hestakostinn og ræktun.
- Dalbær í Flóa (heimsóknartími) Glaumur frá Geirmundarstöðum tekin út ef tíminn og veður leyfir.
- Matarhlé.
- Ölvushöllin Ingólfshvoli Guðmundur Björgvinsson sýnir okkur kynbótahross sem eru í þjálfun hjá honum.
Það er mikilvægt að skráning berist fyrir 1 .mars.svo hægt sé að panta rétta stærð af langferðabíl þátttökugjald er 3000 kr. per mann.
Skráning : [email protected] eða í síma:6988370 (Helgi) – sjá nánar á www.limur.123.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH