Skartar þremur heiðursverðlauna hryssum
Það eru ekki öll hrossaræktarbú sem skarta heiðursverðlauna hryssu. Hvað þá þremur. En þannig er staðan núna á Auðsholtshjáleigu, hjá þeim Gunnari Arnarsyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur.
Hryssurnar sem um ræðir eru Vordís, Trú og Gígja frá Auðshotlshjáleigu. Allar undan Orra frá Þúfu. Þær hafa allar skilað afburða hrossum. Öll afkvæmi Gígju sem sýnd hafa verið eru með fyrstu verðlaun. Undan Trú er hinn fríði, fínlegi og flinki töltari Toppur frá Auðsholtshjáleigu, sonur Álfasteins frá Selfossi.
Hryssur þurfa fimm dæmd afkvæmi og 116 stig í aðaleinkunn kynbótamats til að hljóta heiðursverðlaun. Því miður hafa sýningar á þeim verið aflagðar á Landsmótum, en ræktendur hljóta viðurkenningu á fagráðsfundi í hrossarækt sem haldinn er á hverju hausti. Þær systur á Auðsholtshjáleigu er allar langt yfir mörkum í aðaleinkunn, með 126 og 127 stig.
HÉR má sjá skemmtilega frétt um afar ólíklegar tilviljanir hjá þeim systrum á Auðsholtshjáleigu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH