Reiðnámskeið með Rúnu Einarsdóttur
„Helgina 9. og 10. mars verður reiðnámskeið með Rúnu Einarsdóttur í reiðhöllinni á Akureyri. Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða kennslu og mæta knapar í fyrsta tíma tveir og tveir en að öðru leyti fer námið fram í einkatímum.
Námskeiðsgjald er 25.000 kr en þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með námskeiðinu en hafa ekki tök á að mæta með hest geta gert það gegn vægu gjaldi (1500 kr.).
Tekið er á móti skráningum til 27. febrúar á netfangið [email protected] (Lina Eriksson) eða í síma 844 1369.
Námskeiðið er haldið á vegum Léttis og hafa félagsmenn forgang. Tíu þátttakendur komast að á námskeiðinu en ef fleiri skrá sig verður dregið úr hópnum. Þátttakendur greiða 5000 kr. staðfestingargjald eftir útdrátt. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning Léttis: 0302-26-15839 og kt. 430269-6749.
Ef tilskilinn fjöldi næst ekki fellur námskeiðið niður,“segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Léttis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH