KB mótaröðin

  • 26. janúar 2011
  • Fréttir
KB mótaröðin

Þann 5. febrúar næstkomandi verður 1. mót KB mótaraðarinnar haldið.  Mótið er opið öllum sem áhuga hafa…

Liðakeppni  (Lágmark 3 í liði – Opin keppni)   –  Einstaklingskeppni  (Opin keppni)
5. Febrúar    Fjórgangur, 26. feb. Gæðingakeppni (A-og B-flokkur), 19.mars Tölt og fimmgangur
Skráningar berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 26. feb á netföngin: [email protected], [email protected] eða í s. 691-0280 og 699-6116. Eftirtalið þarf að koma fram í þessari röð: Keppnisflokkur, upp á hvor höndina er riðið, nafn knapa, nafn og litur hests.  Ef einstaklingurinn ætlar að vera í liði þarf auk þess að skrá fyrir hvaða lið kept verður. Öll mótin hefjast kl. 12:00.  Skráningargjald er:  1.500.kr fyrir 1.,2.flokk, lítið keppnisvanir (færri en 20 keppnir að baki),ungmenni, 1.000 kr. fyrir annan hest, börn og unglinga.  Skráninargjald greiðist inn á reikning 0354-26-001688, kt.481079-0399. í síðasta lagi fimtudaginn 27. feb. annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] (fram þarf að koma nafn knapa og hest).  Keppnisflokkar: 1.flokkur, 2.flokkur, lítið keppnisvanir, börn, unglingar og ungmenni
Allar nánari upplýsingar um reglur og ef einhverjar fyrirspurnir eru varðandi mótið er fólki bent á facebook síðu KB-mótaraðarinnar.
Mótaröðin fer fram í reiðhöllinni í Borganesi og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa og Skugga
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link