Hestadagar formlega kynntir – Langar þig að vera með í skrúðreið?

  • 25. mars 2011
  • Fréttir
Hestadagar formlega kynntir - Langar þig að vera með í skrúðreið?

Hestadagar í Reykjavík voru formlega kynntir í Húsdýragarðinum í gær.

Hestadagar eru samstarfsverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Iceland Travel, Inspired by Iceland og Icelandaair Hotels og að tilefni fundarins stigu þau Haraldur Þórarinsson formaður LH, Einar Karlsson hjá Höfuðborgarstofu og Hildur Ómarsdóttir hjá Icelandair Hotels á bak á þægum reiðhestum og töltu um Húsdýragarðinn.

Dagskrá Hestadaga hefst á mánudag með kynbótaferð á Suðurland, á þriðjudag verður kynbótaferð á Vesturland og miðvikudagurinn er helgaður Félagi Tamningamanna sem mun standa fyrir sýnikennslu. Á fimmtudag verður Landbúnaðarháskólainn á Hólum með kynningu en um kvöldið mun vera haldin sölusýning. Hestahátíð í Hafnafirði fer fram á föstudag með heimsókn hesta í leikskóla, með hópreið og hestasýningu og glensi á Þórsplani en á föstudagskvöldið mun barna- og unglingastarfi hestamannafélaganna vera gerð góð skil á stórsýningu.

Lokadagur Hestadaga, og jafnframt sá stærsti, verður laugardaginn 2. apríl. Þá munu sex hestamannafélög standa saman að skrúðreið frá BSÍ, upp Laugaveg og að Húsdýra- og Fjölskyldugarðinum þar sem fjölskylduhátíðin „Gobbedí Gobb“ fer fram. Ístöltskeppnin „Þeir allra sterkustu“ á laugardagskvöld mun síðan slá botninn í Hestadaga í Reykjavík.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í skrúðreiðinni þann 2. apríl eru beðnir um að setja sig í samband við tengiliði hestamannafélaganna sinna sem eru eftirfarandi:

Hörður: Guðjón – [email protected]
Sörli: Margrét – [email protected]
Andvari: Ingibjörg – [email protected]
Sóti: Snorri Finnbjörnsson – [email protected]
Fákur: Hilda Karen – [email protected]
Gustur: Böðvar – [email protected]

Á heimasíðu Hestadaga í Reykjavík má nálgast allar frekari upplýsingar um dagskráliði hátíðarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link