Æfingar hafnar á Ingólfshvoli

  • 10. desember 2013
  • Fréttir
Framkvæmdum að ljúka og tamningarmenn að komast á fullt.

Starfsemin á Ingólfshvoli er smá saman að komast í gang en framkvæmdir eru langt komnar. Búið er að breyta veitingasalnum og lengja hann til norðurs, en útlit verður allt gerbreytt.

Sýningar verða dagleg fyrir ferðamenn yfir háannatímann en í annan tíma er stefnt á að vera með sýningar fimm daga vikunnar. Nú standa yfir æfingar á atriðum sýningarinnar en í henni taka þátt tamningarmenn staðarins sem verða um átta talsins. Meðal tamningamanna sem eru með aðstöðu á staðnum eru Hans Þór Hilmarsson, Fanney Valsdóttir, Helgi Eyjólfsson, Valdís Ólafsdóttir, Tómas Snorrason auk nokkurra nema á hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Nú er risinn stærsti risaskjár landsins á veggnum fjær áhorfendum, en hann er um 40 metra langur. Þar munu fara fram sýningar á kynningarefni fyrir ferðamenn þegar ekki eru skipulagðar sýningar í gangi, en þá verður skjárinn hluti af sviðsmyndinni.

“Æfingar ganga vel og stefnt er á generalprufur í janúar auk þess sem sýningar verða fyrir hópa innan ferðaþjónustunnar til að kynna verkefnið fyrir þeim. Fyrstu sýningar fyrir almenning eru svo áætlaðar í byrjun febrúar” segir Guðmar Þór einn af rekstraraðilum staðarins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link