Skráning hafin á fyrstu kynbótasýningu ársins
Vorsýning kynbótahrossa á Sauðárkróki fer fram dagana 20. og 21 apríl. Tekið er á mót skráningum á Leiðbeiningamiðstöðinni Skagafirði S:455-7100/ [email protected].
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 17. apríl og er það einnig síðasti greiðsludagur.
Leggja þarf inn á reikning 1125-26-0710 kt: 580901-3010 Skýring: Nafn á hrossi.
Kynbótasýningin er partur af hestadögum í Skagafirði, en laugardaginn 21. apríl er gert ráð fyrir að yfirlitssýning farir fram milli kl. 10:00 og 12:00, þá verður reikennslusýning reiðkennaraefna Hólaskóla í reiðhhöllinni Svaðastöðum, opið verður á Sögusetri Íslenska hestsins á Hólum og um kvöldið verður stórsýningin Tekið til kostanna í Svaðastaðahöllinni og ball á Mælifelli á eftir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH