Firmakeppni Fáks
Firmakeppni Fáks verður haldin á sumardaginn fyrsta, nk. fimmtudag 19. apríl, að er fram kemur á heimasíðu félagsins. Skráning fer fram á netinu í vikunni, engin skráningargjöld eru á mótið en skilyrði er snyrtilegur klæðnaður:
„Þá verður einnig opið hús hjá félagsmönnum þar sem gestum verður boðið að kynna sér hvað það er að vera hestamaður í Reykjavík. Einnig verður félagsheimilið opið og boðið upp á léttar veitingar.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum
- Pollaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Byrjendaflokkur – bæði kyn
- Konur II
- Karlar II
- Konur I
- Karlar I
Einning mun „Par mótsins“ verða sérstaklega heiðrað og þar verður klæðnaður, prúðmennska, fas og heildarsvipur hafður að leiðarljósi. Par mótsins getur komið úr hvaða flokki sem er.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH