Reykjavíkurmeistaramót 2011

  • 19. apríl 2011
  • Fréttir
Reykjavíkurmeistaramót 2011

Reykjavíkurmeistaramót 2011 verður haldið dagana 4.-8.maí á félagssvæði Fáks Víðidal.

Skráningagjöld í ár verða kr. 5000 fyrir fullorðna/ungmenni og kr. 3500 fyrir unglinga/börn. Sú nýbreytni
verður í ár að skuldlausir Fáksfélagar fá kr.1 000 í afslátt á hverja skráningu.

Minnum keppendur á að skrá réttar upplýsingar því að allar breytingar sem berast eftir að skráningarfresti
líkur kosta kr. 1000.

Skráning mun fara fram dagana 25.-26.apríl á netfanginu [email protected] (rennur út á miðnætti þann 26.apríl)
Einnig verður tekið á móti skráningum á skrifstofu Fáks í reiðhöllinni og í gegnum síma 567-0100 þann 26.apríl milli kl.13:00-20:00.

Gefa þarf upp eftirfarandi upplýsingar í skráningu:

Kennitala, nafn og símanúmer knapa
IS númer hests
Keppnisgrein og -flokkur
Upp á hvora hönd skal riðið
Kortanúmer

Kveðja,

Mótanefnd Fáks

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link