Spuni er alvöru gæðingur
Stóðhesturinn Spuni frá Vesturkoti er alvöru hestur, geðgóður, flugviljugur og rúmur á öllum gangi. Sannkallaður íslenskur gæðingur eins og þeir gerast bestir. Hann er aðeins 5 vetra.
Spuni var sýndur á Sörlastöðum í morgun. Hann hlaut rosa einkunn fyrir kosti, 8,78, þar af 9,5 fyrir skeið og vilja. Hann er með 8,5 fyrir tölt, brokk, fet og fegurð. Fyrir sköpulag er hann með 8,43, þar af 9,0 fyrir samræmi.
Spuni er undan gæðingaföðurnum Álfasteini frá Selfossi og Stelpu frá Meðalfelli, sem er undan Oddi frá Selfossi og Eydísi frá Meðalfelli, Piltsdóttur frá Sperðli. Það má því með sanni segja að í ættartréinu séu þéttir alhliða ganghestar.
Ef hægt er að líka Spuna við einhverja þeirra umfram aðra þá kemur Piltur frá Sperðli fyrst upp í hugann. Og næstur frændi hans Flosi frá Brunnum, sem var mjög líkur á litinn, Ófeigssonur frá Hvanneyri, en Ófeigur er einnig móðurafi Pilts.
Knapi á Spuna var mesti knapi á kynbótahrossum fyrr og síðar, Þórður Þorgeirsson, en þjálfari hestsins er Ólafur Ásgeirsson, tamningameistari í Vesturkoti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH