KS deildin

  • 10. mars 2017
  • Fréttir
Niðurstöður úr fimmgangi

Fimmgangskeppni KS-Deildarinnar fór fram í gærkvöldi. 

Eins og komið hefur fram þá voru 15 stóðhestar skráðir til leiks og stefndi því í mikla stóðhestaveislu en einnig voru spennandi hryssur skráðar.
Þórarinn Eymundsson og Narri frá Vestri Leirárgörðum voru efstir eftir forkeppni með einkunina 7,03. 

Fimm stóðhestar mættu í a-úrslit. 
Þórarinn og Narri voru mjög öryggir, Narri jafnvígur á allar gangtegundir undir góðri stjórn Tóta og fékk hann 7 og yfir fyrir öll atriðin sem skilaði þeim nokkuð öruggum sigri 7,17. 
Helga Una og Stálasonurinn Örvar frá Gljúfri höfnuðu í öðru sæti en þau sýndu frábæra spretti á skeiði en þess má geta að Örvar er með 10,0 fyrir skeið í kynbótadómi. 

Mette og Karl frá Torfunesi enduðu í þriðja sæti. Karl frábær á tölti og sýndi einnig góða skeiðspretti. 

Finnbogi og Dynur vöktu verðskuldaða athygli í gær. Hesturinn góður á öllum gangtegundum og reiðmennska Finnboga til fyrirmyndar. 
Í úrslitum lenti Finnbogi í vandræðum með skeið sem kostaði þá sennilega eitt af efstu sætunum.

 
Flosi og Grámann áttu góða forkeppni en hnökrar í úrslitum sérstaklega á skeiði og stökki varð þeim að falli. Grámann var þó mjög góður á tölti og brokki. 

Það var lið Hrímnis sem sigraði liðakeppnina enn og aftur en þau koma mjög sterk til leiks!

A-úrslit
1.Þórarinn Eymundsson – Narri frá Vestri Leirárgörðum – 7,17
2.Helga Una Björnsdóttir – Örvar frá Gljúfri – 6,62
3.Mette Mannseth – Karl frá Torfunesi – 6,57
4.Finnbogi Bjarnason – Dynur frá Dalsmynni – 5,74
5.Flosi Ólafsson – Grámann frá Hofi – 4,60

B-úrslit
6. Bjarni Jónasson – Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli – 6,67
7.Ísólfur Líndal – Ganti frá Dalbæ – 6,64
8.Magnús Bragi Magnússon – Snillingur frá Íbishóli – 6,52
9.Elvar Einarsson – Roði frá Syðra-Skörðugili – 6,12
10.Líney María Hjálmarsdóttir – Léttir frá Þjóðólfshaga 3 – 6,10

Forkeppni
1.Þórarinn Eymundsson – Narri frá Vestri Leirárgörðum – 7,03
2.Mette Mannseth – Karl frá Torfunesi – 6,77
3.Finnbogi Bjarnason – Dynur frá Dalsmynni – 6,67
4.Flosi Ólafsson – Grámann frá Hofi – 6,63
5.Helga Una Björnsdóttir – Örvar frá Gljúfri – 6,57
6.Magnús Bragi Magnússon – Snillingur frá Íbishóli – 6,53
7.Bjarni Jónasson – Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli – 6,43
8.Ísólfur Líndal – Ganti frá Dalbæ – 6,40
9.Elvar Einarsson – Roði frá Syðra-Skörðugili – 6,30
10.Líney María Hjálmarsdóttir – Léttir frá Þjóðólfshaga 3 – 6,27
11.Pétur Örn Sveinsson – Hlekkur frá Saurbæ – 6,17
12.Gústaf Ásgeir Hinriksson – Glóey frá Flagbjarnarholti – 6,10
13.Sina Scholz – Nói frá Saurbæ – 6,03
14.Viðar Bragason – Bergsteinn frá Akureyri – 6,0
15.Barbara Wenzl – Mjöður frá Hofi – 5,93
16.Guðmundur Karl Tryggvason – Díva frá Steinnesi – 5,87
17.Svavar Örn Hreiðarsson – Flugar frá Akureyri – 5,57
18.Jóhann B. Magnússon – Mjölnir frá Bessastöðum – 5,40
19.Artemisia Bertus – Kiljan frá Þúfum – 5,40
20.Fanndís Viðarsdóttir – Vænting frá Hrafnagili – 5,10
21.Elvar Logi Friðriksson – Glitri frá Grafarkoti – 4,97

Liðakeppni
Hrímnir – 110
Hofstorfan/66°norður – 75
Draupnir/Þúfur – 70,5
Íbess/Top Reiter – 62
Team-Jötunn – 54,5
Lífland – 52,5
Mustad – 50,5

Einstaklingskeppni
Þórarinn Eymundsson – 44
Helga Una Björnsdóttir – 39
Elvar Einarsson – 31
Mette Mannseth – 31
Artimisia Bertus – 27,5
Finnbogi Bjarnason – 27
Gústaf Ásgeir Hinriksson – 27
Ísólfur Líndal – 25
Flosi Ólafsson – 24,5
Fanndís Viðarsdóttir – 24

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link