Frábær vika

  • 2. júlí 2016
  • Fréttir
Kristján Árni og Sjéns frá Bringu unnu barnaflokkinn.

Blaðamaður hitti Kristján Árna rétt eftir úrslitin í barnaflokki. Þeir félagar voru í fimmta sæti fyrir úrslitin og höfðu allt að vinna. ,,Búið að vera frábært, alveg síðan á mánudaginn,“ sagði Kristján Árni ánægður eftir sigurinn. ,,Sjéns er frábær gæðingur, rólegur og yfirvegaður. Bara góður hestur.“ Sjéns er frábrugðið nafn á hesti og þegar Kristján Árni var spurður hvort hann vissi um nafngiftina svaraði þessi flotti knapi um hæl, ,,Það á bara engin sjéns í hann.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link