Ungir knapar verðlaunaðir hjá Herði
Æskulýðnefnd hestamannafélagsins Harðar hélt uppskeruhátíð í Harðarbóli s.l. miðvikudagskvöld. Farið var yfir dagskrá vetrarins og veitt heilmörg verðlaun fyrir góðan árangur og framfarir á síðasta starfsári. Þess ber að geta að hestamannafélagið hlaut Æskulýðsbikar LH á dögunum fyrir framúrskarandi æskulýðsstarf, en félagið hefur haldið utan um mikið og fjölbreytt starf undanfarin ár.
Alls hlutu níu ungir knapar viðurkenningar á uppskeruhátíðinni:
Mestu framfarir á almennu reiðnámskeiði hlaut í barnaflokki Hrönn Gunnarsdóttir, efnilegasti knapinn í barnaflokki var Anton Hugi Kjartansson. Harpa Sigríður Bjarnadóttir hreppti tvo titla í ár en hún var besti knapinn og sýndi mestu framfarir á keppninsámskeiði í barnaflokki.
Titillinn besti knapi í unglingaflokki hlaut Súsanna Katarína Guðmundsdóttir. Viðurkenningu fyrir mestu framfarir á keppnisnámskeiði í unglingaflokki fékk Lilja Dís Kristjánsdóttir og titillinn efnilegasti knapi í unglingaflokk hlaut Hinrik Ragnar Helgason.
Viðurkenningu fyrir mestu framfarir á keppnisnámskeiði í ungmennaflokki hlaut Bjarney Rósa Sveinbjörnsdóttir en titilinn efnilegasti knapinn í ungmennaflokki fékk María Gyða Pétursdóttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH