Karlakeppnin Baukatölt
Gleði og fjör verður í fyrirrúmi í Dalahöllinni í Norðfirði miðvikudaginn 4. apríl nk. þegar Gleðimótið Baukatölt verður haldið, en það er aðeins ætlað körlum og sjá fljóð úr hestamannafélaginu Blæ um dómgæslu.
Keppt verður í þremur keppnisgreinum, en auk nokkuð hefðbundinnar töltkeppni munu karlarnir fara í kappreiðar, bæði á tölti og skeiði. Sérstök verðlaun verða veit fyrir fallegustu ásetnuna, efnilegasta Baukinn og brosmildasta Baukinn.
Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected] og allar nánari upplýsingar veitir Sigga í s. 864-1171 og Hjörvar í s. 823-4576.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH