Mette leiðir liðið Draupnir/Þúfur í KS deildinni
KS-deildin hefst í kvöld á fjórgangskeppni. Mótið fer fram í Svaðastaðahöll og hefst kl. 20.
Undanfarið hafa lið keppninnar verið kynnt eitt af öðru. Það síðasta sem kynnt er til leiks er liðiðDraupnir/Þúfur
Liðstjóri þessa liðs er Mette Moe Mannseth og með henni í liði eru Barbara Wenzl, Gísli Gíslason og Þorsteinn Björnsson.
„Þarna eru mjög sterkir knapar á ferðinni sem búa án efa yfir góðum hestakosti,“ segir í tilkynningu frá KS-deildinni.
Barbara mun mæta með Hrafnfinn frá Sörlatungu, Þorsteinn teflir Krónu frá Hólum fram og Mette mætir á Verdí frá Torfunesi.
Ráslista fjórgangskeppninnar má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH