Á spretti aftur á skjáinn

  • 11. nóvember 2015
  • Fréttir
Umfjöllun um Glugga- og gler deild áhugamanna í hestaíþróttum.

Hestamannafélagið Sprettur og RÚV hafa undirritað samning um framleiðslu og sýningu annarar þáttaraðar af “Á spretti,” sjónvarpsþáttum sem fjalla um Glugga- og glers deild áhugamanna í hestaíþróttum.

RÚV sýndi frá deildinni sl. vetur við mjög góðar viðtökur, en þá voru sýndir fimm þættir. Á næsta ári verða þættirnir sex enda hefur einni keppnisgrein verið bætt við deildina og fjallað verður um mótin fimm, auk samantektarþáttar í lokin. Þættirnir verða á dagskrá hálfsmánaðarlega á milli móta og hefjast sýningar í febrúar.

Umsjón með þáttunum hefur Hulda G. Geirsdóttir og um dagskrárgerð sjá þau Hulda og Óskar Þór Nikulásson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link