Drifin áfram af viljastyrknum

  • 24. september 2014
  • Fréttir
Kappreið Anítu í Mongólíu vindur upp á sig.

„Markmiði mínu í lífinu hefur verið náð. Það var að keppa í lengstu og hættulegustu kappreið í heimi. Ætli allt sem ég geri eftir þetta verði ekki hálf dapurlegt í samanburði?“ spyr tamningarkonan Aníta Margrét Aradóttir þegar hún er innt eftir tilvistarlegri spurningu. Hún er nýlega komin frá Mongólíu þar sem hún keppti í kappreiðinni Mongol Derby. Hún hyggst standa fyrir svipaðri ofurreið á Íslandi.

Í fyrsta sinn í sögu Eiðfaxa prýðir forsíðan hest af öðru hestakyni en þeim íslenska. Ástæðan er burðarviðtal við tamningakonuna Anítu Margréti. Mongólski hesturinn er forfaðir íslenska hestsins og svipar þeim mjög til hvors annars.

Þá má benda á að hluti af þátttöku í Mongol Derby felst í því að safna fjármagni til góðgerðamála og er sett lágmarksviðmið fyrir hvern keppanda. Söfnunin stendur til 1. október svo enn er hægt að heita á Anítu og styrkja um leið Barnaspítalasjóð Hringsins eða félagasamtökin Cool Earth. Styrktarreikningsnúmerin eru 515-04-253774 fyrir Barnaspítala Hringsins og 515-04-253778 fyrir Cool Earth. Reikningarnir eru skráðir á kennitölu Anítu 200282-3619.

Greinina má nálgast í 9. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link