Fyrirmyndarmót – en fáir áhorfendur
Fyrsta World Ranking mót ársins fór fram á Mánagrund í Keflavík um helgina. Yfir 200 skráningar voru á mótið sem var vel. Eins og vænta má voru mættir til leiks bæði alvanir knapar sem og áhugamenn og upprennandi afreksmenn. Tefldu þau fram bæði þekktum gæðingum en þó mátti þar sjá fjölda ungra og eftirtektaverðra hrossa. Keppni var firnasterk og hart var barist, sérstaklega í flokkum unglinga og ungmenna.
Rúna Tómasdóttir sigraði nokkuð örugglega í tölti og fjórgangskeppni barnaflokks á Brimli frá Þúfum. Í unglingaflokki mátti vart sjá mun á prýðilega ríðandi knöpum og gæðingum þeirra, Róbert Bergmann mætti til leiks með stóðhestinn Skjálfta frá Bakkakoti í fimmgangi og Trú frá Holtsmúla í tölti og sigraði báða flokka með glæsibrag. Annar í tölti var Gústaf Ásgeir Hinriksson á ungum fótaburðarrklár að nafni Fjölnir frá Akureyri, spennnandi verður að fylgjast með þeim í sumar. Arnór Dan Kristinsson stóð hins vegar uppi sem stigahæsti knapi í unglingaflokki, varð fjórði í tölti en fékk brons í fimmgangi og fjórgangi.
Keppni í ungmennaflokki var ekki síður spennandi enda eru þar á meðal gríðalega færir knapar sem gefa atvinnumönnum lítið eftir. Ásmundur Ernir Snorrason sigraði töltkeppnina á Rey frá Melabergi eftir einvígi við Ragnar Tómasson sem sat Sleipni frá Árnanesi. Ásmundur þurfti hins vegar að sætta sig við silfur í fjórgangskeppninni en þar sigraði Ólöf Rún Guðmundsdóttir á Sval frá Litlu-Sandvík. Ólöf Rún var í miklu stuði og gerði sér lítið fyrir og vann einnig fimmgangskeppnina á Þremli frá Vörðum sem rann skeiðið stórstígur og kraftmikill og uppskar fögnuð í formi bílflauta.
Í áhugamannaflokki bar Karen Sigfúsdóttir sigur úr býtum bæði í fjórgangs- og töltkeppni, á hinum ofsaprúða Háfeta frá Litlu-Sandvík. Í töltkeppni 1. flokks var einnig annar Háfeti, frá Úlfsstöðum, ótvíræður sigurvegari. Eyjólfur Þorsteinsson fór þar mikinn en hann sigraði jafnframt fjórgangskeppnina á Klerki frá Bjarnanesi. Hann þurfti hins vegar að játa sig sigraðan í fimmgangskeppninni þar sem óvæntustu úrslit mótsins urðu. Framan af virtist keppnin standa aðallega á milli Eyjólfs sem sat Kraft frá Efri-Þverá og Johns Kristins Sigurjónssonar á Konsert frá Korpu. Hins vegar fipaðist þeim báðum skeiðsprettir og svo fór að Reynir Örn Pálmason hampaði bikarnum eftir örugga sýningu á Greifa frá Holtsmúla.
Heldur fámennt var annars í brekkunni, áhorfendur voru mikið til aðrir keppendur og nánustu aðstandendur þeirra eins og vera ber en ekki bar mikið á að hestamenn hafi lagt leið sína á Suðurnes til þess eins að horfa á skemmtilegt mót. Hvort ástæða þess liggi í offramboði stærri og minni viðburða á sviði hestamennskunnar, tíma, stað, veðrinu eða áhugaleysi verður þó ósagt hér.
Plús:
Aðstæður á félagssvæði Mána eru með besta móti. Aðkoma fyrir keppnishross er til fyrirmyndar. Opið var inn í reiðhöllina, sem stendur aðeins steinsnar frá keppnisvellinum, sem keppendur nýttu sér til upphitunar og æfinga sem er vel. Það bætir á upplifun áhugasamra áhorfenda að geta skyggnst inn í slíkt ferli.
Mínus:
Nokkuð ósamræmi varð vart milli dómara og ekki var greint að þeir væru að hygla fyrirmyndarreiðmönnum. FEIF hefur hvatt til þess að dómarar nýti í auknum mæli rými til frádráttar og viðbótar við lokaeinkunnir fyrir reiðmennsku og geri knöpum og áhorfendurm gein fyrir því um leið og einkunnir eru birtar með nýjum dómaraspjöldum. Þeirra var ekki vart um helgina.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá því í dag og lokaúrslit mótsins en heildarniðurstöður má sjá á heimasíðunni mani.is.
Töltkeppni
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Eyjólfur Þorsteinsson Háfeti frá Úlfsstöðum 8,33
2 Siguroddur Pétursson Glóð frá Kýrholti 7,67
3 Högni Sturluson Ýmir frá Ármúla 7,50
4 Ríkharður Flemming Jensen Fjarki frá Hólabaki 7,06
5 Sævar Haraldsson Glæðir frá Þjóðólfshaga 1 6,89
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Bragur frá Seljabrekku 6,83
A úrslit 2.flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Karen Sigfúsdóttir Háfeti frá Litlu-Sandvík 6,67
2 Brynja Viðarsdóttir Kolbakur frá Hólshúsum 6,28
3 Linda Björk Gunnlaugsdóttir Kraftur frá Votmúla 2 6,06
4 Lára Jóhannsdóttir Rist frá Blesastöðum 1A 5,78
5 Margrét Guðrúnardóttir Álfur frá Akureyri 5,67
A úrslit ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Reyr frá Melabergi 7,44
2 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi 7,39
3 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Svalur frá Litlu-Sandvík 6,89
4 Kári Steinsson Spyrnir frá Grund II 6,89
5 Hrafnhildur Sigurðardóttir Faxi frá Miðfelli 5 6,17
A úrslit unglinga
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Róbert Bergmann Trú frá Holtsmúla 6,89
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Fjölnir frá Akureyri 6,61
3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Rá frá Melabergi 6,50
4 Arnór Dan Kristinsson Silfurtoppur frá Hátúnum 6,44
5 Alexander Freyr Þórisson Þráður frá Garði 6,22
A úrslit barna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Rúna Tómasdóttir Brimill frá Þúfu í Landeyjum 6,44
2 Nadía Sif Gunnarsdóttir Tara frá Hala 5,72
3 Bergþóra Ósk Arnarsdóttir Stimpill frá Kálfhóli 5,61
4 Jóhanna Guðmundsdóttir Ásdís frá Tjarnarlandi 4,89
5 Hanna Líf Arnarsdóttir Kraftur frá Þorlákshöfn 3,39
A úrslit T4
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Halldóra H Ingvarsdóttir Dagfinnur frá Blesastöðum 1A 6,71
2 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Skálmar frá Hnjúkahlíð 6,67
3 Helena Sjöfn Guðjónsdóttir Valsi frá Skarði 5,33
A úrslit T7
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hallveig Karlsdóttir Loftur frá Vindási 6,59
2 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Spölur frá Njarðvík 6,25
3 Þórhalla Sigurðardóttir Vífill frá Síðu 6,17
4 Hrafnhildur Jónsdóttir Hrímar frá Lundi 5,78
5 Arna Rúnarsdóttir Prúður frá Laxárnesi 5,92
6 Björn Viðar Ellertsson Ási frá Ármóti 5,42
7
Fjórgangur
A úrslit 1.flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 7,50
2 Edda Rún Ragnarsdóttir Punktur frá Varmalæk 7,10
3 Sigríður Sjöfn Ingvarsdóttir Klaki frá Blesastöðum 1A 6,83
4 Hrefna María Ómarsdóttir Grímur frá Vakurstöðum 6,70
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ofsi frá Margrétarhofi 6,53
6 Halldóra H Ingvarsdóttir Hellingur frá Blesastöðum 1A 6,43
A úrslit 2.flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Karen Sigfúsdóttir Háfeti frá Litlu-Sandvík 6,53
2 Stefnir Guðmundsson Bjarkar frá Blesastöðum 1A 6,00
3 Elín Deborah Wyszomirski Jökull frá Hólkoti 5,73
4 Jóhann Ólafsson Númi frá Kvistum 5,73
5 Oddný Erlendsdóttir Hrafn frá Kvistum 5,70
A úrslit ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Svalur frá Litlu-Sandvík 6,93
2 Ásmundur Ernir Snorrason Reyr frá Melabergi 6,77
3 Kári Steinsson Straumur frá Sörlatungu 6,70
4 Hrafnhildur Sigurðardóttir Faxi frá Miðfelli 5 6,10
5 Rúna Helgadóttir Hekla frá Syðra-Velli 6,07
A úrslit unglinga
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Alexander Freyr Þórisson Astró frá Heiðarbrún 6,17
2 Bára Steinsdóttir Spyrnir frá Grund II 6,10
3 Arnór Dan Kristinsson Spaði frá Fremra-Hálsi 5,90
4 Jóhanna Margrét Snorradóttir Reisn frá Ketilsstöðum 5,83
5 Stefán Hólm Guðnason Miðill frá Nýjabæ 5,70
A úrslit barna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Rúna Tómasdóttir Brimill frá Þúfu í Landeyjum 6,20
2 Bergþóra Ósk Arnarsdóttir Perla frá Hólabaki 5,57
3 Nadía Sif Gunnarsdóttir Tara frá Hala 4,90
4 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Ólavía frá Melabergi 4,03
5 Hanna Líf Arnarsdóttir Kraftur frá Þorlákshöfn 3,60
Fimmgangur
A úrslit 1.flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Reynir Örn Pálmason Greifi frá Holtsmúla 1 7,19
2 Jóhann G. Jóhannesson Brestur frá Lýtingsstöðum 7,14
3 John Sigurjónsson Konsert frá Korpu 7,07
4 Edda Rún Ragnarsdóttir Völur frá Árbæ 6,98
5 Eyjólfur Þorsteinsson Kraftur frá Efri-Þverá 6,98
6 Daníel Gunnarsson Vindur frá Hala 3,24
A úrslit ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Þremill frá Vöðlum 6,10
2 Hinrik Ragnar Helgason Haddi frá Akureyri 5,76
3 Steinn Haukur Hauksson Dalvar frá Kvistum 5,12
4 Kristín Ísabella Karelsdóttir Hrammur frá Álftárósi 5,02
5 Eva María Þorvarðardóttir Kátína frá Sælukoti 4,07
A úrslit unglinga
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Róbert Bergmann Skjálfti frá Bakkakoti 5,48
2 Brynja Kristinsdóttir Blúnda frá Arakoti 5,33
3 Arnór Dan Kristinsson Hugi frá Hafnarfirði 5,12
4 Nína María Hauksdóttir Mökkur frá Flugumýri 5,07
5 Birta Ingadóttir Glampi frá Hömrum II 4,98
SKEIð 100M (FLUGSKEIð)
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigurður Sæmundsson Spori frá Holtsmúla 1 8,44
2 Eyjólfur Þorsteinsson Vera frá Þóroddsstöðum 8,56
3 Grettir Jónasson Zelda frá Sörlatungu 8,64
4 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi 9,26
5 Þórir Hannesson Þöll frá Haga 9,30
6 Högni Sturluson Glóa frá Höfnum 9,93
7 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Blíða frá Uxahrygg 11,05
8 Jóhanna Margrét Snorradóttir Perla frá Hólmi 0,00
9 Haukur Aðalsteinsson Vika frá Beigalda 0,00
10 Sigurjón Einarsson Guðfinna frá Kirkjubæ 0,00
Fjórgangssigurvegari 1.flokkur:
Sigríður Sjöfn Ingvarsóttir á Klaka frá Blesastöðum 1A
Fjórgangssigurvegari 2.flokkur:
Karen Sigfúsdóttir á Háfeta frá Litlu-Sandvík
Fjórgangssigurvegari ungmenna:
Ásmundur Ernir Snorrason
Stigahæsti knapi unglinga:
Arnór Dan Kristinsson
Stigahæsti knapi barna:
Rúna Tómasdóttir
Dómarar mótsins:
Hörður Hákonarson yfirdómari
Halldór Viktorsson
Ólöf Guðmundsdóttir
Lise Dalskov
Þórir Örn Grétarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH