Vörðu titilinn
Jakob S. Sigurðsson og Skýr frá Skálakoti sigruðu fimmganginn annað árið í röð. Nokkuð var um sviptingar í A úrslitunum en eftir forkeppni var Olil Amble á Álfarni frá Syðri-Gegnishólum með 7.13 í einkunn. Jafnir í 2-3 sæti voru þeir Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi og Jakob á Skýr með 7,07 í einkunn. Jakob og Olil höfðu sæti skipti í A úrslitum en það gat ekki munað minna en Olil og Álfarinn hlutu 7,45 í einkunn einungis 0,03 minna en Jakob. Í þriðja sæti endað síðan Teitur Árnason á Sjóð frá Kirkjubæ með 7,38 í einkunn.
Top Reiter héldu forustunni í liðakeppninni en þeir eru með 139 stig. Lið Hrímnis/Export hesta náðu þó að minnka munin örlítið og eru með 132,5 stig og í öðru sæti. Lið Líflands er komið í þriðja sæti með 124,5 en lið Ganghesta/Margrétarhofs tryggðu sér fjórða sæti eftir frábært gengi í fimmgangnum, tveir knapar í úrslitum og hlutu þau liðaplattann að launum.
Í einstaklingskeppninni styrkti Jakob stöðu sína enn frekar en hann er efstur með 32 stig. Í öðru sæti er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með 21 stig og í því þriðja er Árni Björn Pálsson með 18,5 stig. Það getur allt gerst bæði í liða- og einstaklingskeppninni en nóg er af stigum í pottinum.
Hér fyrir neðan eru síðan niðurstöður kvöldsins en næst verður keppt í gæðingafimi þann 14.mars og mun keppnin fara fram í TM höllinni í Víðidalnum.
Niðurstöður – Fimmgangur – A úrslit
Sæti Knapi Hestur Lið Einkunn
1 Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti Lífland 7.48
2 Olil Amble, liðsstjóri Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan 7.45
3 Teitur Árnason Sjóður frá Kirkjubæ Top Reiter 7.38
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Brimnir frá Efri-Fitjum Ganghestar / Margrétarhof 7.31
5 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.19
6 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu Ganghestar / Margrétarhof 5.81
Niðurstöður – Fimmgangur – Forkeppni
Sæti Knapi Hestur Lið Einkunn
1 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan 7.13
2-3 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.07
2-3 Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti Lífland 7.07
4 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu Ganghestar / Margrétarhof 7.03
5-6 Teitur Árnason Sjóður frá Kirkjubæ Top Reiter 7.00
5-6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Brimnir frá Efri-Fitjum Ganghestar / Margrétarhof 7.00
7 Viðar Ingólfsson Hængur frá Bergi Hrímnir / Export hestar 6.87
8 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Elrir frá Rauðalæk Lífland 6.83
9 Þórarinn Ragnarsson Ronja frá Vesturkoti Hrímnir / Export hestar 6.80
10 Árni Björn Pálsson Jökull frá Breiðholti í Flóa Top Reiter 6.73
11 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sproti frá Innri-Skeljabrekku Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 6.70
12 Ásmundur Ernir Snorrason Kaldi frá Ytra-Vallholti Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.63
13 Sigurður Vignir Matthíasson Milljarður frá Barká Ganghestar / Margrétarhof 6.57
14 Hulda Gústafsdóttir Roði frá Brúnastöðum 2 Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 6.50
15 Hanna Rún Ingibergsdóttir Dropi frá Kirkjubæ Lífland 6.40
16 Sigurður Sigurðarson Árdís frá Litlalandi Gangmyllan 6.27
17 Helga Una Björnsdóttir Júlía frá Syðri-Reykjum Hrímnir / Export hestar 6.23
18 Sigurbjörn Bárðarson Flóki frá Oddhóli Torfhús retreat 6.17
19-20 Bergur Jónsson Spurning frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan 6.13
19-20 Sina Scholz Nói frá Saurbæ Torfhús retreat 6.13
21 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.03
22-23 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga / Horse export 5.93
22-23 Arnar Bjarki Sigurðsson Snillingur frá Íbishóli Torfhús retreat 5.93
24 Matthías Leó Matthíasson Galdur frá Leirubakka Top Reiter 5.33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH