Sýnikennsla og sölusýning á fimmtudag
Fimmtudaginn 31. mars verður mikið um að vera í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.
Háskólinn á Hólum mun vera með kynna starfsemi sína kl. 17 með sýnikennslum og fræðslu. Ný námsskrá verður kynnt og þær breytingar sem verða á skólanum nú þegar skólinn er kominn á háskólastig. Aðgangur er frír og opinn öllum.
Kl. 20 þann sama dag mun fara fram stórsölusýning þar sem tuttugu söluhross verða kynnt og áhugasömum kaupendum gefst kostur á að kynnast hrossunum og tala við seljendur. Ljósmyndir og myndbönd frá sýningunni verða síðan birt á Hestaleit.is þar sem hrossin verða auglýst til sölu.
Enn eru nokkur sölupláss laus og er seljendum bent á að hafa samband í síma 896-5777 og 821-2804 eða í netföngin: [email protected] og [email protected]. Skráning kostar 5.000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH