Skeiðmót Meistaradeildarinnar
Á laugardaginn fer skeiðmót Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum fram. Mótið verður haldið á Brávöllum á Selfossi en Skeiðfélagið mun sjá um framkvæmd mótsins.
Keppt verður í 150m. skeiði og gæðingaskeiði.
Eins og venja er verður frítt inn á mótið svo við hvetjum alla til að fjölmenna á Selfoss næsta laugardag kl. 13:00 til að sjá hröðustu hesta landsins í fyrstu kappreiðum ársins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH