Verðlaun fyrir glæsilegustu mottuna
Mynd/andvari.is
Karlatöltið fer fram í reiðhöll Andvara föstudaginn 23. mars. Skráning er Þriðjudaginn 20. mars kl. 20:00 – 22:00 í félagsheimilinu. Einnig hægt að skrá í síma 893-4425, 660-1813 eða 896-8707 gegn því að gefa upp Vísakortanúmer fyrir skráningargjöldunum.
Í boði verða 3 flokkar:
Karlar 2 (minna keppnisvanir)
Karlar 1 (meira keppnisvanir)
Opinn flokkur
Vegleg verðlaun verða í boði í öllum flokkum:
* Folatollar fyrir efstu sæti allra flokka (t.d. Kjarni f. Þjóðólfshaga, Krók frá Ytra-Dalsgerði)
* Verðlaun frá Líflandi
* Verðlaun frá Jóni Söðlasmiði
* Sign skartgripur fyrir glæsilegasta parið
* 5 spónarballar frá sponn.is fyrir glæsilegustu mottuna
Það verður að vanda stuð og fjör í reiðhöllinni og léttar veitingar seldar á staðnum. Karlar, þá er bara að taka daginn frá, safna liði og mottu og taka þátt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH