Guðlaugur og Mette á haustfundi HS
Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður í kvöld kl. 20 í félagsheimili Sleipnis, Hliðskjálf á Selfossi (hesthúsahverfinu í Suðurtröð).
Guðlaugur Antonsson fer yfir sýningarárið og Mette Mannseth fjallar um tamningar og þjálfun ungra hrossa. Stjórn HS hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH