Opið fyrir skráningar á Íslandsmót
Íslandsmótin í hestaíþróttum 2015 verður haldið á félagssvæði Spretts í Kópavogi og Garðabæ dagana 8 til 12 júli n.k. Öllu verður tjaldað til enda búist við fjölda knapa, hesta og áhorfenda, samkvæmt tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.
„Félagssvæði Spretts er að komast í hátíðarbúninginn og Sprettarar vinna ötullega að undirbúningi. Forkeppnin öll verður keyrð samtímis á tveimur völlum 8-10 júlí en svo öll úrslitin á aðalvellinum í Sprettsskeifunni þann 11 og 12 júli.
Hjá Spretti verður boðið uppá allt það besta sem er að gerast í hestageiranum okkar enda aðstaðan öll eins og best verður. Á mótinu verða ljúffengar veitingar alla dagana þar sem Sprettarar selja kaffi og með því ásamt því að skemmtilegir matarvagnar verða á staðnum með úrvali veitinga.
Búið er að opna fyrir skráningu á www.sportfengur.com og er skráningafrestur til miðnættis 28 júni. Stofnuð hafa verið tvö mót í Sportfeng. Eitt fyrir fullorðna og ungmenni og annað fyrir börn og unglinga. Þetta er gert til að einfalda vinnu í Kappa – biðjum þá sem skrá sig að hafa það í huga.
Skráningagjald er kr. 4500 fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokka, kr. 6500 fyrir fullorðinsflokkana og kappskeiðgreinar kr. 4.000,- Skráning er staðfest með greiðslu – annað ekki tekið til greina.
Skráningarfrestur er til miðnættis sunnudagsins 28 júni. Hægt er að skrá til miðnættis 1 júlí en þá hækkar skráningargjaldið um kr. 2000 á hverja grein. Allar frekar upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á [email protected]
Keppendur athugið að það er einn keppandi inná vellinum í einu nema í fjórgang barnaflokki en þá verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.
Öll aðstaða er til staðar á Sprettssvæðinu og hesthús í boði. Allar nánari upplýsingar um hesthúsapláss fást hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben.
Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Spretts, á facebooksíðu Spretts og á viðburðinum “Íslandsmót í hestaíþróttum” sem stofnuð hefur verið. Einnig verður gefið út kort um aðkomur að svæðinu og hvar hvaða viðburðir fara fram.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH