Samdráttur í hrossasölu til útlanda

  • 18. ágúst 2011
  • Fréttir

Hrossasala til útlanda hefur dregist saman.

Innanlandsmarkaðurinn frosinn

Greinilegur samdráttur er í hrossasölu. Fyrstu sjö mánuði ársins höfðu verið flutt út 525 hross, flest til Þýskalands, 192, og Sviss, 83. Til nokkurra ára hefur salan verið mest til Norðurlandanna, einkum Svíþjóðar. Þangað hafa nú verið flutt 64 hross.

Allnokkur samdráttur varð í hrossasölu til útlanda í fyrra, sem rakinn var til hrossapestarinnar, en þá var gert nokkurra mánða hlé á útflutningi. Útflutt hross árið 2009 voru 1435. Til að ná þeirri tölu á þessu ári þarf að flytja út um 900 hross til áramóta. Ekki er útlit fyrir að það náist, en þó ber að geta þess að hrossasala til útlanda er yfirleitt meiri seinni hluta ársins.

Þeir hrossabændur og hestasöluaðilar sem Hestablaðið hefur haft samband við eru flestir sammála um að hrossasala innanlands sé nánast í frosti. Hjá Félagi hrossabænda fengust þær upplýsingar að þessa dagana sé verið að funda með ýmsum aðilum í þeim tilgangi að finna nýjar leiðir til að koma hrossasölu af stað aftur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link