Langar þig á námskeið með Unn Krogen?
Unn Krogen
Unn Kroghen hefur tekið frá helgina 17. – 19. júní ef þátttaka næst á námskeið.
Unn hefur náð vel til nemenda sinna hérlendis sem hafa undantekningarlaust verið mjög ánægðir með kennsluna.
Kennslan hentar öllum reiðmönnum, bæði áhugafólki og vönum keppnisknöpum.
Námskeiðið yrði haldið að Borg í Þykkvabæ, og yrði fyrirkomulag námskeiðsins þannig að á seinni part föstudags yrði fyrirlestur og sýnikennsla. Á laugardag og sunnudag yrðu þrír reiðtímar, tveir á laugardeginum og einn á sunnudeginum ásamt spjalli og spurningum.
Þeir sem hafa áhuga á að koma á námskeið í júní vinsamlegast sendið póst á netfangið [email protected] eða í síma 863-8813
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH