Karlatölt Mána – úrslit
Karlatölt Mána fór fram á föstudaginn í Mánahöllinni. Margar glæsilegar sýningar sáust og fjölmargir áhorfendur skemmtu sér hið besta vð að sjá glæsilega hest og knapa. Að lokum fór þannig að Jón Viðar og Ari frá Síðu unnu 1. flokkinn og Borgar Jónsson og Hervör frá Hvítárholti unnu 2 flokkinn. Mótanefnd Mána vill þakka Braga Guðmundssyni og Unnari Ragnarssyni fyrir stuðningin en þeir styrktu mótið.
Úrslit:
1. flokkur
1. Jón Viðar Viðarsson Ari frá Síðu
2. Sveinbjörn Bragason Gjöf frá Hvoli
3. Högni Sturluson Ýmir frá Ármúla
4. Sigurður Kolbeinsson Blær frá Kálfholti
5. Unnar Ragnarsson Skálmar frá Hnjúkahlíð
6. Snorri Ólason Reyr frá Melabergi
7. Halldór Ragnarsson Goggur frá Skáney
8. Jóhann Gunnar Jónsson Ása frá Keflavík
9. Gunnar Eyjólfsson Drangey frá Miðhjáleigu
10. Haukur Aðalsteinsson Baldi frá Syðri-Löngumýri
2. flokkur
1. Borgar Jónsson Hervör frá Hvítárholti
2. Haraldur Valbergsson Orka frá Síðu
3. Guðbergur Reynisson Djarfur frá Stóra-Vatnsskarði
4. Lárus Þórhallsson Aska frá Arnarhóli
5. Róbert Andersen Hlynur frá Leysingjastöðum
6. Jens Elísson Loki frá Þjóðólfshaga
7. Guðmundur Gunnarsson Ásta frá Herríðarhóli
8. Arnar Stefánsson Félagi frá Hjarðarhaga
9. Sævar Elísson Sólrún frá Melabergi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH