Norðlensk hestaveisla í apríl
Dagana 17.-19. apríl mun Norðlenska hestaveislan fara fram í Léttishöllinni á Akureyri.
„Veislan byrjar á föstudagskvöld með stórsýningunni Fákar og Fjör. Á laugardagsmorgni verður sýnikennsla, farið í heimsóknir á ræktunarbú í nágreninu, dýrindis kvöldverður í Skeifunni og lýkur svo veislunni á hinni einu og sönnu Stóðhestaveislu. Nánari upplýsingar verða sendar þegar nær dregur,“ segir í tilkynningu frá viðburðarnefnd Léttis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH