Mikil stemning á World Toelt
Heimsbikarmótið World Toelt hófst kl. 8 í morgun. Mikil stemning er í Óðinsvéum og hafa margir Íslendingar lagt land undir fót til að fylgjast með mótinu. Umgjörðin er öll hin glæsilegasta að sögn Antons Páls Níelssonar sem er staddur þar.
Í morgun fór fram fyrri hluti forkeppni í fjórgangi V1 og slaktaumatölti T2.
Í fjórganginum bar af Frauke Schenzel frá Þýskalandi og Tigull von Kronshof en þau hafa átt mikilli velgengni að fagna á keppnisvellinum undanfarið ár. Eru þau sem stendur í efsta sæti. Í slaktaumatöltinu kom hin færeyska Elin Tindskard á Hölkvir frá Ytra-Dalsgerði á óvart með glæsilegri sýningu.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá mótinu alla helgina HÉR gegn greiðslu en Eiðfaxi mun einnig flytja regluleg tíðindi af gangi mótsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH