Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún. og Þyts

  • 18. október 2011
  • Fréttir
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún. og Þyts

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún. og hestamannfélagsins Þyts verður haldin laugardagskvöldið 29.október í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

 
„Þessi frábæra skemmtun hefst stundvíslega kl 20:30 en húsið opnar kl 20:00 og það verður sko stemming.
 
Potturinn á Blönduósi sér um matinn og á boðstólnum verður:
Forréttur: Grafinn lax – Reyktur lax  – Sjávarréttapâté – Sveitapâté – Pastarami piparskinka
Meðlæti: Hunangssinnepssósa – Hvítlauksdressing – Ferskt salat – Fylltar ólífur – Brauð og smjör
Aðalréttur: Rosmarinkryddaður lambavöðvi – Hunagnsmarineruð kalkúnabringa – Grísa purusteikt 
Meðlæti: Rauðvínssósa – Ofnbakaðar kartöflur – Eplasalat – Kartöflusalat – Rauðlauks-tómatsalat – Rauðkál og baunir – Brauð og smjör ofl.
 
Veislustjórn verður í höndum söngdívu og fyrrum Selamálaráðherra.
 
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, sími 4512465 og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 26.október, athugið ekki posi.
Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr 6000 matur, skemmtun og ball, en ef þú vilt hins vegar bara skella þér á dansleik í syngjandi sveiflu með Geirmundi, sem hefst kl 00:00, þá kostar það litlar 2500 kr.
Enginn posi á staðnum!
 
Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins 2010 af Hrossaræktarsamtökum V-Hún.
Gauksmýri – Grafarkot – Lækjamót – Stóra Ásgeirsá – Þóreyjarnúpur
 
Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun.
Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, gráta og hafa gaman.
 
Athugið
Unnsteinn AndrésarAndar eða Steini hennar Þórdísar….  hlökkum sérstaklega til að sjá þig J
Svo framarlega sem þú átt lausan dag, gaufastu til að láta sjá þig,“ segir á heimasíðu Þyts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link