Lokaskráningardagur á Gæðingamót Hrings

  • 14. júní 2011
  • Fréttir

Mynd/hringurdalvik.net

Lokaskráningardagur á Gæðingamót Hrings

Gæðingamót Hrings og sameginleg úrtaka Hrings, Glæsis og Gnýfara vegna Landsmóts 2011 verður haldinn á Hringsholtsvelli föstudaginn 17. júní nk. 

 

Styrktaraðili mótsins er Lífland.

Keppt verður í eftirtöldum greinum
A-flokkur 
B-flokkur 
Unglingar, ungmenni og barnaflokkur 
Þá verður einnig opin Tölt keppni. 
Og að lokum skal nefna skeiðgreinar, 100m skeið 150m og 250m skeið úr básum. – Rafræn tímataka.
 
Skráningargjald er kr. 2500 á fyrstu skráningu per knapa og 2000 á næstu skráningar.
Skráningargjald börn og unglingar kr 1000 á hverja skráningu.
Skráningarfrestur rennur út þriðjudag 14.júní kl 20:00
Skráning fer fram á heimasíðu félagsins (neðst í valstiku á forsíðu)
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 15. júní  kl 20:00
Vinsamlegast sendið kvittun á netfang: [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link