Árbakkafjölskyldan sigursæl
Hestafjölskyldan á Árbakka tók sinn skerf af verðlaunum á Reykjavíkurmóti Fáks í hestaíþróttum. Allir fjórir fjölskyldumeðlimir fórum heim með Reykjavíkurmeistaratitil í fórum sínum, einn eða fleiri.
Húsbóndinn Hinrik Bragason er Reykjavíkurmeistari í tölti, fjórgangi og fimmgangi í 1. flokki, og samanlagður að stigum: Í tölti á Sigri frá Hólabaki með 8,06, í fjórgangi á Sigri frá Hólabaki með 7,10, og í fimmgangi á Sturlu frá Hafsteinsstöðum með 7,60.
Eiginkona hans Hulda Gústafsdóttir í fjórgangi Meistara á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu með 7,83. Edda Hrund Hinriksdóttir í slaktaumatölti ungmenna á Knörr frá Syðra-Skörðugili með 7,13.
Gústaf Ásgeir Hinriksson hlaut fjóra titla eins og pabbinn, nema að hann keppti í unglingaflokki: Í fimmgangi á Fálka frá Tjarnarlandi með 6,52, í fjórgangi á Naski frá Búlandi með 7,10, í gæðingaskeiði á Fálka frá Tjarnarlandi með 6,42. Sannarlega glæsilegur árangur.
Það skal tekið fram að mótið er opið. Hæsti Fáksfélagi í hverri grein hlýtur Reykjavíkurmeistaratitil, en þarf ekki að vera sigurvegari í greininni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH