Miðasala hafin

  • 24. nóvember 2014
  • Fréttir
Uppskeruhátíð hestamanna.

Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Gullhömrum í Grafarholti 10. janúar næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið.

Hljómsveitin Rokk heldur uppi fjörinu en í henni eru þeir:
Hreimur Örn – gítar og söngur
Pálmi Sigurhjartarson – píanó og söngur
Benedikt Brynleifsson – trommur
Róbert Þórhallsson – bassi
Vignir Snær – gítar og söngur
Jógvan Hansen – söngur og fiðla

Þriggja réttar máltíðin verður með glæsilegu móti:
Forréttur – Austurlensk sjávarréttasúpa með karrí og kókos
Aðalréttur – Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
Ábætisréttur – Suðrænn kókosdraumur með berjablöndu og crumble.

Miðasala er hafin á [email protected]
Miða og borðapantanir verða til kl. 18, mánudaginn 5. janúar.
Miðar verða afhentir þriðjudaginn 6. janúar í Gullhömrum.
Verð: 9600 kr.
Selt inn á dansleik frá 23.30. Verð 2.500 krónur

Gestir þurfa að senda kvittun á [email protected] og þá verður tekið frá borð á þeirra nafni.
Borðaröðun fer fram þegar miðasölu lýkur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link