Hæstu klárhross heimsins
Katla frá Ketilsstöðum braut á margan hátt blað í kynbótadómum þegar hún var sýnd á Miðsumarsýningu nú í vikunni en hún er sem dæmi fyrsta hryssan á Íslandi sem hlýtur 10,0 fyrir brokk en fyrir hafði einungis ein hryssa í heiminum náð því marki. Það var hryssan Náttfaradís frá Wreta sýnd árið 2003.
Ekkert hross hefur fyrr hlotið fleiri en tvær tíur í sama dómi og er Katla með þessum árangri orðin hæst dæmda klárhross heimsins með 8,65 í aðaleinkunn. Hæst dæmdi klárhestur heimsins er hins vegar Tígull frá Gýgjarhóli með 8,60 í aðaleinkunn,
Stundum er því fleygt að ekki sé nóg áhersla á klárhrossaræktun hér á landi en á topp tíu lista yfir hæstu klárhross heimsins eru sjö fædd á Íslandi og þrjú utan lands. Hryssurnar eru sex og stóðhestarnir fjórir og hallar því aðeins á hestana á þessum lista.
Hér er listin eins og hann er í dag:
1. Katla frá Ketilsstöðum (Bergur Jónsson) B: 8,28 H: 8,90 A: 8,65
2. Sending frá Þorlákshöfn (Helga Una Björnsdóttir) B: 8,55 H: 8,70 A: 8,64
3. Tígull frá Gýgjarhóli (Þórður Þorgeirsson) B: 8,65 H: 8,56 A: 8,60
4. Jónína frá Feti (Erlingur Erlingsson) B: 8,46 H: 8,68 A: 8,59
5. Óskadís frá Habichtswald (Frauke Schenzel) B: 8,48 H: 8,65 A: 8,58
6. Garri frá Reykjavík (Jóhann Rúnar Skúlason) B: 8,28 H: 8,77 A: 8,57
7. Kvika frá Forstwald (Nils Christian Larsen) B: 8,50 H: 8,60 A: 8,56
8. Náttfaradís frá Wreta (Magnús Skúlason) B: 8,44 H: 8,63 A: 8,56
9. Eldjárn frá Tjaldhólum (Guðmundur Björgvinsson) B: 8,09 H: 8,85 A: 8,55
10. Dökkvi frá Mosfelli (Karly Zingsheim) B: 8,39 H: 8,63 A: 8,54
Svo að allrar sanngirni sé gætt þá eru fjögur önnur klárhross með 8,54 í aðaleinkunn. Ættbókin raðar hrossum jafnan rétt og miðar þá við aukastafi en hér fyrir neðan er listi yfir þau hross sem eru með sömu aðaleinkunn og Dökkvi sem er 10 á lista yfir efstu klárhross heimsins:
Hnota frá Garðabæ (Bylgja Gauksdóttir) B: 8.14 H: 8.80 A: 8.54
Urður frá Gunnarsholti (Þórður Þorgeirsson) B: 8.53 H: 8.54 A: 8.54
Hreyfill frá Vorsabæ II (Sigurður Óli Kristinsson) B: 8.50 H: 8.56 A: 8.54
Ljósvaki frá Valstrýtu (Árni Björn Pálsson) B: 8.22 H: 8.75 A: 8.54
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH