Árshátíð hestamannafélagsins Skagfirðings
Ásdís Ósk er ein af þeim sem tilnefnd er í flokknum ungmenni ársins
Árshátíðin verður haldin í Ljósheimum laugardagskvöldið 9.nóvember klukkan 20:00, húsið opnar klukkan 19:30. Veislustjóri kvöldsins er Elvar Logi Friðriksson. Ávarp, fjöldasöngur og glens. Viðurkenningar veittar til Skagfirskra afreksknapa ársins 2019.
Happdrættir. Alliðr miðar á árshátíðina gilda sem happdrættismiðar. Aukamiðar verða til sölu á árshátíðinni, sem verða seldir til styrktar félagsheimili okkar, Tjarnabæ og keppnissvæði hmf Skagfirðings á Sauðárkróki.
Aukamiði kostar 2.000 kr., eingöngu seldir árshátíðargestum á staðnum.
Vinningar er gullpottur af folatollum undan ekki minni hestum en Kveik frá Stangarlæk, Trymbli frá Stóra-Ási, Dofra frá Sauðárkróki, Atla frá Efri-Fitjum og e.t.v. fleiri gæðingum. – Hér er miði möguleiki.
„Félagsmaður ársins“ – allir geta sent tillögur um duglegasta sjálfboðaliðann í textaskilaboð í síma; 899-8031 til 8.nóv
Þriggja rétta Skagfirskt hlaðborð. Danshljómsveitin Smóking leikur fyrir dunandi dansi langt fram á nótt.
18 ára aldurstakmark og miðaverð 6.500 krónur. Miðapantanir hjá Rósu Maríu, 861-3460 og hjá Ásu, 862-0806/ [email protected] til klukkan 24:00 þriðjudaginn 5.nóv.
Tilnefningar til afreksknapa Hestamannafélagsins Skagfirðings eru í stafrófsröð. Knapi ársins í Skagafirði verður tilkynntur á hátíðinni.
Ungmennaflokkur
Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Guðmar Freyr Magnússon
Viktoría Eik Elvarsdóttir
Áhugamannaflokkur
Birna M. Sigurbjörnsdóttir
Rósanna Valdimarsdóttir
Steindóra Ólöf Haraldsdóttir
Íþróttaknapi ársins
Magnús Bragi Magnússon
Mette Mannseth
Þórarinn Eymundsson
Skeiðknapi ársins
Bjarni Jónasson
Finnbogi Bjarnason
Þórarinn Eymundsson
Gæðingaknapi ársins
Magnús Bragi Magnússon
Mette Mannseth
Skapti Steinbjörnsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH