Frumtamninganámskeið í Fáki

  • 9. ágúst 2011
  • Fréttir
Frumtamninganámskeið í Fáki

Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal í lok ágúst. Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:

     Atferli hestsins
     Leiðtogahlutverk
     Fortamning á trippi
     Undirbúningur fyrir frumtamning
     Frumtamning
 

Bóklegir tímar:  2 
Verklegir tímar:  12 


Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur. 


Verð: 30.000.- 


 
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi).  Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu. 

Skráning á netfangið [email protected]   – lokaskráningarfrestur er miðvikudaginn 24. ágúst.

Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið. Fyrstur kemur fyrstur fær! 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link