Gæðingafimi í Meistaradeild
JENS EINARSSON:
Hulda Gústafsdóttir mun ríða á vaðið í Gæðingafimi Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum, sem fram fer í Ölfushöllinni annað kvöld.
Tuttugu og fjórir knapar eru skráðir til leiks og ríða allir prógrammið einu sinni í forkeppni. Tíu efstu ríða síðan prógrammið aftur og einkunn úr seinni umferðinni gildir til verðlauna.
Að venju eru nokkur áhugaverð pör á ráslistanum, sum þekkt frá í fyrra, eða úr öðrum greinum frá fyrri árum. Sigurður Sigurðarson keppir á Loka frá Selfossi, en þeir áttu góðan leik í fjórgangi fyrir þremur vikum.
Eyjólfur Þorsteinsson, sem varð efstur í fjórganginum, teflir nú fram Klerki frá Bjarnanesi, sem er þekktur fjórgangari og keppnishestur með ýktan fótaburð. Ólafur Ásgeirsson keppir á Andvarasyninum Hugleik frá Galtanesi, sem vakti athygli í fjórganginum, spennandi keppnishestur.
Olil Amble keppir á Kraflari frá Ketilsstöðum, en hún hefur þjálfað hann markvisst sem keppnishest í nokkur ár og náð prýðilegum árangri í tölti og fjórgangi. Árni Björn Pálsson keppir á Íslandsmeistarinum í tölti frá því í fyrra, Stormi frá Herríðarhóli, og Guðmundur Björgvinsson á Íslandsmeistarnum í fjórgangi frá í fyrra, Hrímni frá Ósi.
Anna Valdimarsdóttir keppir á Króki frá Ytra-Dalsgerði, sem ræktandi hans og eigandi hefur lýst sem „nútímahesturinn holdi klæddur“. Verður spennandi að sjá hvernig þessi stóri og mikli ahliða hestur leysir þetta verkefni í reiðhöllinni, en eitt er víst að hann er vel þjálfaður hjá Önnu. Artemisia Bertus er ekki skráð til leiks, en hún varð efst í Gæðingafiminni í fyrra á Korg frá Ingólfshvoli.
Dómarar í gæðingafiminni verða sex að þessu sinni, þrír sem dæma æfingarnar og þrír sem dæma gangtegundirnar. Dómarar sem dæma æfingarnar eru þau Páll Bragi Hólmarsson, Sigríður Pjétursdóttir og Elsa Magnúsdóttir en dómarar sem dæma gangtegundir eru þeir Sigurður Ævarsson, Magnús Sigurjónsson og Steindór Guðmundsson.
Ráslisti fyrir Gæðingafimi 2013:
|
Hulda Gústafsdóttir |
Ketill frá Kvistum |
|
Anna Björk Ólafsdóttir |
Reyr frá Melabergi |
|
John K. Sigurjónsson |
Kraftur frá Blesastöðumn 1A |
|
Siguður Sigurðarson |
Loki frá Selfossi |
|
Þórdís Erla Gunnarsdóttir |
Ösp frá Enni |
|
Elvar Þormarsson |
Skuggi frá Strandarhjáleigu |
|
Jakob S. Sigurðsson |
Eldur frá Köldukinn |
|
Eyjólfur Þorsteinsson |
Klerkur frá Bjarnanesi |
|
Ævar Örn Guðjónsson |
Veigur frá Eystri-Hól |
|
Daníel Ingi Smárason |
Silfur-Daddi frá Lækjarbakka |
|
Ólafur B. Ásgeirsson |
Hugleikur frá Galtanesi |
|
Ragnar Tómasson |
Sleipnir frá Árnanesi |
|
Olil Amble |
Kraflar frá Ketilsstöðum |
|
Reynir Örn Pálmason |
Baldvin frá Stangarholti |
|
Bergur Jónsson |
Ljóni frá Ketilsstöðum |
|
Árni Björn Pálsson |
Stormur frá Herríðarhóli |
|
Anna S. Valdimarsdóttir |
Krókur frá Ytra-Dalsgerði |
|
Guðmundur F. Björgvinsson |
Hrímnir frá Ósi |
|
Viðar Ingólfsson |
Már frá Feti |
|
Sigurður V. Matthíasson |
Svalur frá Litlu-Sandvík |
|
Gústaf Ásgeir Hinriksson |
Naskur frá Búlandi |
|
Sigurbjörn Bárðarson |
Jarl frá Mið-Fossum |
|
Þorvaldur Árni Þorvaldsson |
Stjarna frá Stóra – Hofi |
|
Sylvía Sigurbjörnsdóttir |
Héðinn Skúli frá Oddhóli |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH