Gæðingafimi á fimmtudag
„Nú er spennan að magnast aftur eftir vel heppnað fjórgangsmót Meistaradeildar í síðustu viku.
Næst á dagskránni er Gæðingafimi og fer keppnin fram fimmtudaginn
14.febrúar og hefst keppni kl.19.00
Við hvetjum fólk að mæta til að horfa á þessa mjög svo spennandi
keppnisgrein.
Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Líflands, Topreiter og hjá
Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Aðgangseyrir á mótið er 1.500 kr.
fyrir 13 ára og eldri, en 500 kr. fyrir 12 ára og yngri.
Keppendur eru í óða önn að fínpússa prógrömm sín fyrir fimmtudaginn og
má gera ráð fyrir hverri glæsisýningunni á fætur annarri á gólfi
Ölfushallarinnar.
Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir keppendur. Þar eru allir þættir
dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Það sem
dómararnir horfa meðal annars á er hversu margar og erfiðar æfingar
parið gerir og hvernig þær eru framkvæmdar, hvernig æfingarnar blandast
við gangtegundir, flæði sýningarinnar, fjölhæfni og styrkleiki
gangtegunda. Knapar þurfa að sýna að lágmarki þrjár gangtegundir og fimm
fimiæfingar og er einungis ein skylduæfing, en hún er opinn sniðgangur á
tölti. Lengd sýningar má vera að hámarki þrjár og hálf mínúta. Við munum
halda áfram sama fyrirkomulagi og í fyrra að einungis 5 knapar ríða
úrslit en ekki 10 eins og hefur verið undanfarin ár.
Í fyrra var það Artemisia Bertus, Hrímni, sem sigraði gæðingafimina á
Korgi frá Ingólfshvoli og má reikna með því pari í titilvörnina í næstu
viku. Í öðru sæti urði Sara Ástþórsdóttir og Díva og í þriðja sæti
Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey.
Ráslistar Gæðingafiminnar verða birtir snemma í næstu viku,“ segir í tilkynningu frá stjorna Meistaradeildar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH