KEA-mótaröðin hefst í febrúar
KEA mótaröð hestamannafélagsins Léttis í hestaíþróttum, verður haldin í vetur í fimmta sinn, í reiðhöllinni á Akureyri.
„Hefst hún þann 14. febrúar á fjórgangi. Þann 28. febrúar verður keppt í fimmgangi. Þann 14. mars er komið að töltinu, Fyrstu þrjú keppniskvöldin fara fram á fimmtudegi. og þann 29. mars sem er föstudagur(föstudagurinn langi) verður keppt í slaktaumatölti, t4 og skeiði, auk þess sem verðlaunaafhending fyrir mótaröðina sem er stigakeppni, fer fram.
A og B úrslit eru í öllum gangtegundagreinum ef fleiri en 20 skráningar verða í hverri grein. Heimilt er að hver knapi skrái tvö hross til keppni í hverri grein. Skráningargjald er kr. 3000 fyrir hverja skráningu. Aldurstakmark er 16 ára og eldri.
5 dómarar dæma keppnina. Öll keppniskvöldin er boðið upp á knapafund með dómurum og mótstjórn kl. 18.00 og keppni hefst svo stundvíslega kl 19.00.
Auglýsing KEA mótaraðarinnar verður send út í næstu viku.
Hestamenn Norðurlandi: Verum með og gerum gott mót enn betra.
Allar nánari upplýsingar veita Sigfús Ólafur Helgason í síma 846-0768 og Haukur Sigfússon í 861-0311.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Létti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH