Kjarnholt 1 hrossaræktarbú Biskupstungna

  • 18. janúar 2013
  • Fréttir
Kjarnholt 1 hrossaræktarbú Biskupstungna

Hrossaræktarfélag Biskupstungna hélt sína árlegu uppskeruhátíð og sviðaveislu í gær í Friðheimum í Bláskógabyggð. Veislan var velsótt en 50 af 60 félagsmönnum mættu.

Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur hélt þar tölu og verðlaunaðir voru þeir félagsmenn sem eiga hross sem sköruðu fram úr á árinu.

Hrossaræktarbú ársins 2012 var kjörið Kjarnholt 1 og var Guðnýju Höskuldsdóttur og Magnúsi Einarssyni færður glæsilegur farandgripur sem Sigurlína Kristinsdóttir  hannaði. Þrjú hross frá Kjarnholtum 1 voru sýnd fyrir kynbótadóm á árinu, Glaðdís, Kolskeggur og Ópera. Voru þau tvö fyrrnefndu m.a. sýnd á Landsmóti og er Glaðdís hæst dæmda hryssa, ræktuð af félagsmönnum í ár. 

Hæst dæmdi stóðhesturinn var hins vegar hin draugmoldótti Svali frá Tjörn og tók hinn níræði ræktandi hans, Guðjón Gunnarsson við verðlaunum fyrir hann. Í viðtali frá því í vor, sagðist Sólon Morthens, tamningamaður, binda miklar vonir við hestinn sem bæði var sýndu fyrir kynbótadóm ásamt því að taka þátt í A-flokki í gæðingakeppni Landsmótsins. Viðtalið við Sólon má nálgast hér.

Ræktunarverðlaun

Hæst dæmdu stóðhestar, ræktaðir af félagsmönnum

1. Guðjón Gunnarsson fyrir Svala frá Tjörn
Draugmoldóttur, fæddur 2006
F: Hnokki frá Fellskoti
M: Spurning frá Bóli
Ræktandi og eigandi: Guðjón Gunnarsson
Sköpulag: 7,96 Hæfileikar: 8,41   Aðaleinkun: 8,23

2.  Magnús Einarsson fyrir Kolskegg frá Kjarnholtum 1
Dökkbrúnn, fæddur 2008
F: Kvistur frá Skagaströnd
M: Hera frá Kjarnholtum 1
Ræktandi og eigandi: Magnús Einarsson
Sköpulag: 8,61  Hæfileikar: 7,94   Aðaleinkun: 8,21

3. Kjartan Sveinsson fyrir Seim frá Bræðratungu
Rauðblesóttur, fæddur 2006
F: Baugur frá Víðinesi 2
M: Sif frá Bræðratungu
Ræktandi:  Kjartan Sveinsson
Eigandi: Leif Overas
Sköpulag: 8,15  Hæfileikar: 7,93   Aðaleinkun: 8,02

Hæst dæmdu hryssur ræktaðar af félagsmönnum

1. Sigurður Jensson fyrir Glaðdísi frá Kjarnholtum 1
Rauð, fædd 2004
F: Glaður frá Kjarnholtum 1
M: Koldís frá Kjarnholtum 2
Ræktandi:  Sigurður Jensson
Eigandi:  Sjöfn Sóley Kolbeinsdóttir og Hoop Alexandra
Sköpulag: 8,14  Hæfileikar: 8,46   Aðaleinkun: 8,34

2. María Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson fyrir Spes frá Fellskoti
Bleikálótt stjörnótt,  fædd 2005
F: Hnokki frá Fellskoti
M: Snót frá Fellskoti
Ræktandi:  María Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson
Eigandi:  Fellskotshestar ehf
Sköpulag: 8,09  Hæfileikar: 8,22   Aðaleinkun: 8,17

3. Njörður Jónsson fyrir Óskadís
Grá, fædd 2007
F: Huginn frá Haga
M: Lokkadís frá Brattholti
Ræktandi og eigandi: Njörður Jónsson
Sköpulag: 8,01  Hæfileikar: 8,10   Aðaleinkun: 8,06

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link