Fákskrakkar í fjörureiðtúr

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Fákskrakkar í fjörureiðtúr

Æskulýðsnefnd Fáks stendur fyrir skemmtiferð á Álftanes 22. maí nk. 

„Stefnt er að því að fara í stuttan, skemmtilegan fjörureiðtúr undir leiðsögn heimamanns. Eftir reiðtúrinn grillum við saman í félagsheimili Sóta og höfum það gott saman. Farið verður af stað kl. 15 og stefnt að því að koma til baka um kl. 20.

Allar nánari upplýsingar um ferðina koma síðar í vikunni en nauðsynlegt er að skrá sig með því að senda póst á [email protected] taka þarf fram hversu margir mæta í reiðtúr og hversu margir mæta í grillið. Séð verður um flutning á hestum fyrir þá sem það vilja. Skráningarfrestur er til hádegis föstudaginn 20. maí. Hvetjum alla til að mæta, eiga skemmtilega stund í nágrenni við forsetann og frú og njóta þess að sjá Perluna frá nýju sjónarhorni,“ segir í tilkynningu frá Æskulýðsnefnd Fáks

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link