Við hesthúshorn Sleipnis – Guðni Ágústsson skrifar

  • 7. júní 2011
  • Fréttir
Við hesthúshorn Sleipnis - Guðni Ágústsson skrifar

Vorið er kalt og gróðrinum fer lítið fram. Menn ræða veðrið fram og til baka og mörgum finnst að þetta hafi aldrei gerst í þeirra lífi…

En svona er þetta menn eru fljótir að gleyma veðri nema eitthvað sérstakt hafi gerst. Við sem höfum lifað tímana tvenna vitum að þetta er ekkert nýtt. Til upprifjunar úr mínu lífi þá gerði haglél á Þingvöllum örlaganóttina hinn 10 júlí 1970 þegar Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sá mikli stjórnmálaskörungur fórst á Þingvöllum í eldsvoða ásamt Sigríði konu sinni og dóttursyni. Minnist enn þessa morguns og þessa mikla áfalls í lífi þjóðarinnar.  
Á sama tíma stóð yfir Landsmót Hestamanna á Þingvöllum ég var þar og gott ef tveir hestar fórust ekki þessa nótt.  
Enn muna hestamenn Landsmót á Melgerðismelum í Eyjafirði um svipað leiti sumars 1998 og heiðar urðu ófærar norðanlands vegna snjóa og tvísýnt var um hvort aflýsa yrði Landsmótinu.
Vorið sem ég tók við starfi Landbúnaðarráðherra 1999  var eitt mitt fyrsta verk í starfi að ferðast um norðurland sem var víða dauðkalið í túnum. Líklega var þetta vor síðasta kalda vorið  því við höfum verið að upplifa frábær vor og sumur síðan, það sem af er öldinni.  Að vísu gerði maíhret 2005 og varpfuglar kúrðu í fönninni.              Brátt hlýnar vonandi í veðri og við gleymum öllum erfiðleikum grillum lamb og gleðjumst útí guðsgrænni náttúrunni. En Sleipnismenn hafa átt gleðiríka vordaga á Brávöllum þar hefur farið fram úrtaka fyrir Landsmótið á Vindheimamelum og opið gæðingamót Sleipnis , Háfeta og Ljúfs. Keppnin var það spennandi að menn fundu ekki fyrir kuldanum og hitnaði í hamsi þetta var barátta uppá punkta og kommur eða aukastafi. Sá hinn frábæri hestamaður Sigursteinn Sumarliðason vann A-flokkinn á Álm frá Skjálg og hlaut þarmeð Sleipnisbikarinn og hefur þá Gunnar M Friðþjófsson  meistarakokkur fagnað ákaft ásamt fleirum. Sleipnisskjöldurinn á langa sögu og hefur verið afhentur sigurvegara á besta alhliðagæðingi allt frá 1950. Sigursteinn lét ekki þar við sitja heldur sigraði einnig B-flokkinn á Ölfu frá Blesastöðum  með einnkunn  uppá 9,09, frábært afrek. Sigursteinn er hér uppi í horninu og situr Álm. Nú munu tuttugu Sleipnisfélagar úr öllum flokkum hafa náð inná Landsmótið með gæðinga sína. Ég óska þeim til hamingju með árangurinn,draumar þeirra hafa ræst. Þeir  Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands Hestamannafélaga og Kristinn Guðnason formaður Félags Hrossabænda stefna bestu hestum landsins og úrvalsknöpum til Landsmóts. Þar verður verandi í boði Skagfirðinga sem kunna sitt fag í héraði sem vart á sinn líka í söng og gleði. Þar verður m.a. Geirmundur sjálfur og  Álftagerðisbræður, Sigga Beinteins og hinn heimsfrægi sveitadrengur Magni Ásgeirsson stjórnar brekkusöngnum.  Þar munu menn meta árangur í kynbótum og reiðlistinni. Framfarir eru miklar á öllum sviðum hestamennskunnar. Landsmótið verður sigurhátíð um íslenska hestinn og hæfni knapans. Við höfum gengið til góðs götuna fram eftir veg árangurinn er ævintýri. Öll umgjörð Lands-mótanna er önnur og betri, til hamingju hestamenn.  
                                                                       Guðni Ágústsson
                                                                     [email protected]
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link